SÆLAR....

Edda

11.10.2006 13:17:10 / eddiegg

........

Ég nenni ekki þessu blogg veseni............ Aldrei að vita nema ég verði aktíf aftur seinna.... En ég ætla að taka væna pásu í bili...

Au revoir 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 21:45:31 / eddiegg

Jæja.. Komin heim...

Jamm jamm jamm.. Ég er komin heim. Kom á fimmtudaginn. Hef bara verið frekar busy síðan. Og var líka mjög busy úti þannig að ég náði ekkert að blogga. Við vorum bara á fullu að pakka, losa okkur við bílinn, ganga frá íbúðinni og svo auðvitað læra ;) En það er ekkert smá gott að vera búin að þessu öllu. Allt dótið ready í kössum uppá hótelherbergi hjá Valda og Begga þar sem þeir verða þangað til þeir fara heim. Get ekki beðið eftir að fá hann heim. 8| Annars er lítð að frétta. Skólinn bara crazy einsog venjulega...
Var í afmæli hja Selmu hennar Ásdísar í dag. Hún er orðin 1 árs!! Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða! Mér finnst einsog það séu bara c.a 2 mánuðir síðan við Steinunn vorum að missaða bókstaflega, þegar við heyrðum fréttirnar! Hehe. Og líka það að Valdi sé að koma heim! Mér fannst þetta vera svo ótrúlega langur tími sem hann átti að vera úti. (er reyndar að koma heim fyrr en ætlað var í fyrstu) En hann er búinn að vera úti í 9 mánuði og mér finnst einsog hann hafi farið bara í síðasta mánuði eða eitthvað. Reyndar spilar það svoldið mikið inní hvað ég er búin að vera mikið úti sjálf.. en samt, frekar fljótt að líða.
En nú ætla ég að reyna að einbeita mér að því að læra.. Er að fara í próf í Fjárstýringu í fyrramálið.... :S Spurning að fara að koma sér að efninu!!!

Au revoir 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 20:28:00 / eddiegg

USA baby......

Jebb... fréttirnar eru þær að ég ákvað að skella mér einu sinni enn til USA ;)
Keypti mér miða fyrir 10 dögum og sagði Valda ekki neitt :D Beggi kom svo og náði í mig til Orlando. Það var ÓGEÐSLEGA fyndið að sjá svipinn á Valda þegar ég mætti inn um hurðina. Beggi tók þetta allt uppá video :D Valdi greyið var alveg heil lengi að átta sig á að ég væri virkilega komin... hehe en þetta var sko þess virði!!! Þó það hafi verði hrikalega erfitt að segja honum ekki að ég væri að koma 8| En ég verð hérna framá miðvikudag.. og lendi á Íslandi næsta fimmtudagsmorgun. Er bara að pakka og ganga frá dótinu okkar núna og svona... .Skrifa aftur fljótlega ;)
Gaman að sjá að það eru einhverjir sem kommenta ennþá ;)

Over and out.... 8)

p.s það er ennþá rigning í þessu skíta landi.. .Sunshine state my ass!!! Valdi er hvítari en ég :lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 10:58:55 / eddiegg

ó nó...

Það er allt að ske næstu 2 daga!!! Kemur í ljós seinna hvað það er.... en úff hvað ég er spennt :D
Ég vona að ég klári þetta helvítis tölfræðiverkefni sem fyrst... á að skila því fyrir miðnætti í kvöld.. Þetta lítur nú ágætlega út.. ekki mikið eftir :$
En annars hef ég voða lítið að segja.. Geri ekki mikið annað en að vera í skólanum...

Þannig að þetta verður ekki lengra í bili. Skrifa aftur á miðvikudaginn ;) og aldrei að vita hvað ég segi þá 8)

Bless í bili...


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 11:27:40 / eddiegg

Allt að ske...

Jamm jamm.. Skyndiákvarðanir í hámarki.... Skipulagið að fara með mig ;) allt að ske... En ja ég gerði nú tilraun til að blogga 6. sept en það datt allt út þannig að ég nennti ekki aftur. Hef samt ekki margt að segja einsog er... Kem kannski með einhverjar sjóðandi fréttir í næstu viku. Ég geri lítið annað en að læra, var reyndar að passa fyrir mömmu og pabba sem komu heim í gær, þannig að það var ekki mikið brallað um helgina. Fór í bíó á Over the hedge.. svaka mynd þar á ferð.

Ætla að halda áfram að fyljgast með í tíma. Skelli mér kannski á Pizza King í hádeginu, hver veit.. :$ Ekki gott að segja.

Bless í bili 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 09:33:52 / eddiegg

Ehem....

Ég er náttúrulega ekki að standa mig í þessu bloggi... Hef reyndar haft ótrúlega lítinn tíma síðan ég kom heim því skólinn er BRJÁLAÐUR! Geri varla annað en að vera í skólanum, fara heim, læra, borða og sofa.... :$ En ég tók mér smá pásu um helgina og skellti mér uppí sumarbústað til ömmu og afa. Það var fínt að komast einu sinni uppí sveit í sumar :) Mjög gott veður og svona....
En þarf að fara að fylgjast með í tíma... pásan búin og Verðbréfatíminn kominn á fullt skrið.... Aldrei að vita nema það verði styttra í næstu færslu ;)

Túrílú

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 16:15:08 / eddiegg

VÓ!!!! Long time no blogg......

Yes yes.... Ég veit ég veit. Gleymdi mér aðeins... og lenti í vænum slatta af tölvuveseni..... En allaveganna þá er ég komin heim. Flaug með þessari líka yndislegu Flugleiðavél :klikk: frá New York og lenti á klakanum á Sunnudagsmorgun. Var rukkuð fyrir væna yfirvigt... (á öllum töksunum BTW) en það var samt ekkert svo mikið þannig að þetta er allt í lagi ;) Það var mjög fínt að fá Jóa bróðir út, og þá sérstaklega til að nota hann sem "burðardýr" hehe.. Hann var sendur út með 3 tómar töksur greyið og tók alveg 1 og hálfa fyrir mig heim... og ég var með 2.

Svo var það tölvuvesenið..... :$ Ég keypti mér semsagt þessa svakalegu tölvu í Best Buy, og svo þegar ég var búin að eiga hana í viku eða svo þá datt mér í hug að fara og horfa á DVD í henni... Ég tók þá eftir því að það var svona blár punktur fastur á skjánnum 8| Ég var ekki par sátt (horfði á þennan helvítis punkt allan tímann) þannig að ég skellti mér bara í Best Buy aftur og spurði þá útí þetta... Þeir alveg "oooh yes there is a missing pixle" og fleygðu í mig nýrri tölvu. Ég fór heim alveg svaka ánægð og opnaði nýja gripinn... Svo þegar ég var að setja tölvuna upp þá fattaði ég að það var eitthvað bogið við space takkann 8) Hann virkaði eiginlega ekkert hægra megin, þannig að ég rauk í Best Buy aftur daginn eftir og viti menn.. fékk nýja tölvu. Sem sagt ég er núna með þriðju tölvuna :haha: En "allt er þegar þrennt er " er það ekki ? 8) Svo var ég náttúrulega bara með amerískt hleðslutæki þannig að ég gat ekki notað tölvuna mikð fyrr en ég var búin að splæsa í nýja snúru. En nú ætti þetta allt að vera komið í lag, þannig að biðin eftir næstu færslu verður vonandi ekki eins löng.
En nú ætla ég að fara að skella mér í lærdóminn, skólinn byrjaði af fullum krafti á mánudagsmorgun.

Adios amigos.

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 02:24:13 / eddiegg

Fyrsta færslan í nýrri tölvu....

Jeij!! Var að kaupa mér nýja tölvu rétt í þessu :haha: Ógeðslega flott :) Þannig að þetta er fyrsta bloggfærslan úr nýju tölvunni 8)

Valdi kláraði flugskólann áðan :lol: Búinn að ná öllum skólaprófunum en á svo bara flugmálastjórnarprófin í Orlando eftir sem eru í September... Svo er kallinn bara næstum orðinn atvinnuflugmaður 8| Á bara eftir að taka eitthvað verklegt þegar hann kemur heim og svo er hann bara búinn með þetta!! Alveg magnað!

Jói bróðir kemur á Laugardaginn sem verður mjög gaman, en það þýðir líka að þá eru bara 2 vikur þangað til ég kem heim :$

Við Valdi förum semsagt til Fort Lauderdale á laugardaginn að ná í Jóa og við gistum öll eina nótt þar á hóteli því Jói lendir ekki fyrr en um miðnætti. Svo á Sunnudeginum verða öll Outlettin á leiðinni heim þrædd :)

En nú ætla ég að fá mér ostaköku frá Cheescake factory og horfa á eitthvað skemmtilegt í imbanum.

Góða skemmtun um helgina allir saman !! og p.s mig langar ekkert sérstaklega að fá símtöl úr dalnum þakka ykkur fyrir, þið megið bara hringja í mig eftir helgina ;) Ég veit það verður ógeðslega gaman og ég veit af hverju ég er að missa :cry:

En ég verð samt í 40° stiga hita á meðan þið verðið í rigningunni í dalnum ;)

Bless bless í bíli 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 01:13:13 / eddiegg

Mmmmm.....



Sælar... Þetta er búinn að vera frekar íslenskur dagur í dag 8) Mmmmm... fékk Flatköku með hangikjöti áðan og Lifrapyslu :haha: og svo Pipp í eftirrétt. Svo í kvöldmat eldaði ég pastarétt með mexíkóosti :P allt að ske. Eva, Tindur, Hrönn og Breki eru komin út aftur. Hitinn snar rýkur upp... 38 stiga hiti og sól í dag. Dauðinn!! of heitt 8| Hlakka til að mæta á klakann og anda að mér fersku lofti. Hata raka og viðbjóð. En nú eru bara 5 dagar í Jóa og 8 dagar í Unni (mjög líklega) :lol: Get ekki beðið eftir að fara á búðaflipp :) og skella mér á ströndina með þeim 8) En vá ég var rænd í síðustu viku... Ekkert svakalegt samt. Var bara að versla í Target, skellti regnhlífinni minni í barnasætið og snéri mér við og var að skoða eitthvað svo þegar ég labbaði af stað aftur þá var búið að róta í körfunni og taka regnhlífina... ?!? Spes! Það var einhver öryggisvörður þarna nálægt og sá hvað ég var áttavilt og spurði hvað væri að .. og ég sagði bara ummm það er búið að taka regnhlífina mína :$ Gæinn tekur málin í sínar hendur og nappar fertuga gellu sem er rétt hjá með regnhlífina mína... Pretty amazing right!?! Svo daginn eftir var Bergurinn í Best Buy og það var brotist inní bílinn hans og 60GB Ipodinum hans stolið og Ray Ban sólgleraugunum líka 8| Ameríku er illa við okkur... En það er alltí lagi, mér er ekkert svo vel við ameríku heldur :lol:
Ætla að halda áfram að horfa á Miss Congeniality og horfa á Valda læra ;)

Adios amigos :o

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 17:01:59 / eddiegg

1 ár....

Nú er ár síðan að við fluttum inní Þrastarhöfðann :) Eða reyndar í gær... Pabbi á afmæli í dag og við fluttum inn daginn fyrir afmælið hans 8) En vá hvað tíminn er fljótur að líða !! Ég get ekki beðið eftir að komast til Íslands aftur!! og hvað þá í íbúðina mína aftur! :cry: Það eru bara 4 mánuðir í þetta þannig að það styttist óðum :) Ég sakna þess líka svo að komast ekki í útilegur á Íslandi þetta árið! Mig dreymir um að sofa í tjaldi og grilla gott íslenskt lambakjöt. Og ekki má gleyma Alí skinku!!! mmmm.... Ég verð bara ofur aktíf í útilegum næsta sumar.. Og fer jafnvel nokkrum sinnum í sumarbústað í vetur að grilla lambakjöt :haha: Hver ætlar að koma með mér ?? En jæja.. það er best að skella sér útí sólina eina ferðina enn :$ Skellti inn myndum af íbúðinni einsog hún leit út fyrir ári síðan :cry: :cry: :cry:

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 01:23:48 / eddiegg

Loksins nenni ég að skrifa eitthvað.....

Jæja. Nú er kominn tími á smá fréttir...

Einar og Sandra eru búin að eignast litla stelpu :haha: 14 merkur og 50.5 cm (minnir mig) Ég samgleðst þeim innilega og hlakkar ekkert smá til að sjá litlu snúlluna!! Get ekki beðið!!!!

En það er nú ekkert mikið að frétta af okkur Flórídabúunum samt... Jú eitt! Ég held ég þurfi að hætta að tala þegar ég er með Valda í bíl! Hann ræður ekki við að hlusta á mig og keyra í einu, ég held að það sé orðið nokkuð ljóst. Fyrir nokkrum árum var hann að ná í mig í Verzló og var að keyra mig heim og ég talaði og talaði... einsog mér einni er lagið og viti menn! Maðurinn keyrði aftan á bíl :!: Svo í fyrradag fórum við í bíó hérna og ég var að segja honum eitthvað svakalega mikilvægt og hann alveg þvílíkt einbeittur að hlusta á mig og úps..... við fórum yfir á ELDRAUÐU ljósi 8| Kona sem var í rétti var ekki par sátt með okkur en við lentum samt ekki í árekstri en það munaði mjög litlu!! Þannig að ég held að ég taki mér smá pásu í að tala í bíl í bili :lol:
Ég ætla að láta mynd fylgja af sólarlaginu hérna. Það er GEÐVEIKT!! Við fórum síðustu helgi útað borða með Breka og Ernu á rosalega góðann Japansaknn veitingastað (sjá myndir í albúmi) og fóru á strandar bar á meðan við vorum að bíða eftir borði og sátum og horfðum á sólina setjast og VÁ hvað það var flott!! og svo var maturinn alveg ógeðslega góður!! Ég hef aldrei samkkað svona gott nautakjöt áður! Kokkurinn var svona inní miðju borðinu að elda. Mjög gaman að horfa á þetta. Ég reyndi að taka nokkrar myndir af þessu sem eru komnar inní Júlí albúmið.
En úff.. Ég er var í Tennis með Valda, Arnari Ómars, Begga og Ingó og ég er orðin svo þreytt í hendinni að ég meika ekki að skrifa meira í bili... Ætla að fara tjilla uppí sófa og horfa á Mörgæsaheimildamynd með Valda :)

Skrifa aftur fljótlega 8)

Hey já.. ekki má gleyma.. Til hamingju með afmælið Rúnar ;)



» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 17:59:12 / eddiegg

Captain Edda and Captain Bergsson II ready to take off......

Þórey og Hildur in the back seat 8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 01:27:13 / eddiegg

Ný færlsa fyrir Dísuna...

Ég er búin að skella inn fleiri myndum frá Orlando í Júlí albúmið og ákvað að láta eina góða fyljga með hérna :haha: Jólakortið sem frændurnir sendu út síðustu jól... Hérna eru þeir að pósa með vélinni sinni 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 03:04:43 / eddiegg

Orlando Baby....




Er að vinna í að skella inn myndum, gengur eitthvað hægt.... Síðan er í verkfalli eftir 4. júlí.
Stóný, Hildur og Þórey leggja af stað á morgun, ætla að vera eina nótt í St. pete og koma svo. Stefnan er tekin á Venice fljúgandi on Friday, fá sér að borða og svo heim í öllara.... Steinunn heldur því fram að hún ætli ekki með, mikill miskilningur þar á ferð....

» 8 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 19:03:36 / eddiegg

America is back in space....


                                  
- Geimskutla Discovery fór í loftið kl 2.38 pm. Svaka stemmari
- Horfðum á þetta í beinni á CNN
- Allt að ske í USA
- Stefnan tekin niðrá höfn í kveld að horfa á flugeldasýningu.....
- Myndir væntanlegar fljótlega frá Orlando ferðinni
- Hef þetta ekki lengra í bili, þarf að fara að fagna independensday 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6